Get out and Stay out!
Skemmtiefni!
07.02.2006 10:41:05 / ninna_sigga

Áætlun!

Jæja! ég held að málið sé bara að taka öll þessi blessuðu lög sem tóku þátt í undankeppninni og demba þeim á netið til að öll lögin fái "sanngjarna meðferð" Ég er alveg á því...! vegna þess að ég er alveg á því að stelpan eigi að fara út! Ég veit að ég var alveg rosalega á móti henni í sumar en þegar maður loks fattar þennan blessaða húmor hennar þá er þetta bara nokkuð skondið! finnst lagið bara algert æði! og alveg brillíant að hafa Siggu Beinteins í bakröddum....ég er komin með þvílíka draumóra að sjá hana á sviðinu þarna úti, ég bara man ekki kaða lag vann í fyrra...það var svo alltof eðlilegt!

en það sem er annað að frétta er að það er alveg brjál að gera í skólanum....Loksins segi ég bara....þetta er bújn að vera þokkalega easy ride hingað til, ég er á næst síðustu önninni minni og kennararnir eru farnir að láta mann vinna fyrir einkunnunum....ég er samt ekki að byðja um mikið meiri hörku en nú er....;)

Hyskið er hresst eins og að vanda en það er satt hjá Evu Lind að við verðum að fara að skipuleggja eithvað skondið til að gera! eithvað sem allir komast í! við erum bestasti vinahópur í heimi og við ætlum að halda því áfram!

Það var leiðinlegt að segja bless við Heiðu í gær þegar hún tók strætó í bæinn! en það fer að koma páskafrí og þar á eftir kemur sumarfrí svo kemur jólafrí og þá er ég búin í skólanum!! yeah!!! þá getum við alltaf verið saman! :D :D

En já best að fara með athyglina á það sem kennarinn er að tjá sig....eithvað um stjórmál...enda FÉL 303 sem er stjórnmálafræði!

Lifið heil að vanda

ta taaa
ykkar
NINNA
Ace skrifaði
ég þori nú ekki örðu en að commenta aðeins hér áður en ég verð hengd eða eitthvað álíka fyrir að gera það ekki :P Ég get ekki sagt að ég sé sammála um að fatta húmorinn hjá Sylvíu, ég gersamlega þoli hana ekki þ.e.a.s karacterinn sem ágústa leikur, en ég er samt alveg sammála því að senda hana út, hrista aðeins upp í þessu evrópu liði enda erum við Íslendingar best.... miðað við höfðatölu ;)
Deisý skrifaði
Hæ hæ!!! Ok, núna er ég búin að kíkja á síðuna og kommenta líka, þannig að það er ekki hægt að vera að skipa mér til að gera það lengur!! Allavega, flott síða, og til hamingju, og við sjáumst í skólanum á morgun, hress og kát (fyrir utan það að ég er að fara í líffræði með Hannesi kl 8 í fyrramálið)
Lína skrifaði
bíddu bíddu.. hafið þið efni á að stofna nýja síðu þegar hin var með því vanræktasta sem þekkist? Neihhj, ég hef enga trú á þessu! ;)
ninna skrifaði
Já málið er að það var ráðist inná hina :( en ég lofa endurbótum...
Katý skrifaði
Hellú :Þ Heyðu jáh ég er nokkuð sammála þessu með að senda hana Silvíu Nótt okkar í visíónið! :D Væri æði að hneiksla fólk smá í staðinn fyrir að vera alltaf eins... En já ég er núna officially móðguð!!! Hef ég núna allt í einu ekki skoðanir?! Urr....:(
Lína skrifaði
hvað meinarðu með ráðist inn á?
Ninna skrifaði
Það var búið að adda inn alveg hevví mikið af óæskilegum linkum inná skoðanirnar! frekar ósæmilegt....losnaði ekki við það! og Katý...þetta er allt í vinnslu...
Lína skrifaði
ahh.. skilðig.. þetta er víst viðloðandi blogcentral..

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.