Get out and Stay out!
Skemmtiefni!
21.09.2006 10:03:54 / ninna_sigga

ENN EITT NÝTT BLOGG!!

Jæja ég Ninna hef sagt blog.central.is upp og byrjað með síðu sem heitir trukkuslessus.bloggar.is sem er bara snilld! en ég mæli með því að fólk láti sjá sig á nýja blogginu. hef hingað til verið dugleg að blogga...

tataaaa

Ninna.

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 18:26:34 / ninna_sigga

hæhæ

Jæja!

Þetta er búið að vera alveg yndislegt sumar og hvað er þetta á maður bara að hanga í tölvunni á sumrin þegar veðrið er líka svona....já....gott....anyhow
ég er varla búin að opna tölvuna síðan ég kláraði síðasta prófið mitt! Gekk vel í skólanum btw bara ein önn eftir víííííí!!!!!

Er enn að vinna í Samskip....það var mjög fróðlegt í ár!

Við erum búin að vera með mörg lessukveld undanfarið það verður trúlega körfubolti í kveld!!

shit maður við fórum á Pirates um daginn geggjað góð mynd nema það að þegar það var smá eftir af henni var ég alveg í fokking spreng maður!!!! samt geggjum mynd mæli með henni!!!!

anyhow. ég þarf að koma mér út konan bíður!!!

reyni að kípa in töts!


lifið heil
ykkar einlæg

Ninna.

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 08:49:16 / ninna_sigga

Hæhæh

Dautt segiði....já veistu ég er sammála!

Ég hef bara verið að þróa með mér ákeðna tölvufóbíu undanfarið, hef skipt tölvunni út fyrir heklunál og garn! hehe já ég veit ég er spes! Ég ætla bara að skrifa smá til að tilkynna það að ég er á lífi! og ég er ekki ein um þessa síðu....mér finnst að Heiða egi að fara að leggja sitt af mörkum...það er alveg yndislegt að lesa það sem hún skrifar, alger penni ;)

Jæja það sem er helst að frétta er það að ég er orðin einstæðingur, foreldrar mínar lögðu land undir fót og fóru í 3 vikna reisu til Kanarí! Þau hafa gott af þessu ;) hlakka samt til að fá þau aftur (já þau fóru á þriðjudaginn ;)) Heiða er búin að vera dugleg að koma til mín á kvöldin sem er náttúrulega bara æði Takk ástin! :*

Opnir dagar búnir, mér fanns þeir bara heppnast nokkuð vel, hvað með ykkur hina FVA ingana. Eva Lind er hætt í skóla og farin að vinna....ég er farin að nokkurnvegin sætta mig við það en ég sakna hennar alveg óheyrinlega mikið...it's not the same without her!

Fyrir 2 vikum var gathering í Borgarnesi fyrir Hyskið og maka það var bara hevví stuð...meira stuð fyrir suma þó ;) allt í einu átti ég 4 sytkini....hehe ég var að telja upp kað ég ætti mörg systkini og fann alltí einu að ég ætti 4 en ekki 3 ég hef þó aldrei hitt þetta 4ða hehe ;);)

Heyrðu ég held að tíminn sé að fara að vera búin...ætla að hætta núna svo ég geti klárað þétta ;)

Lifið heil öllsömul!

ef eithver vill koma og HJÁLPA mér í eldhúsinu be my guest!

en já við heyrumst

tataaaa

Ninna.

» 12 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 11:04:19 / ninna_sigga

Turkkus Lessus menningarleg!

Jæja...ég verð víst að sanna að þetta blogg lifi góðu lífi! Þótt að fólk er ekki rosalega duglegt að kommetna en oki...

Það er mikið að gerast í skulen núna...eða nánar tiltekið í næstu viku. Þá hefjast opnir dagar! Það er fínt að þegar önnin er brotin svona upp. Ég ætla að fara í leikhús, sýningin er í Borgarleikhúsinu sem hljómar bara rosa vel og Vesturport er með hana sem er jafnvel bara ennbetra! Þett a er sýningin “Glæpur gegn diskóinu”.  En það er nú alddeilis sem ég er að verða menningarleg. Við heiða erum að fara í Þjóðleikhúsið á “Túskildingsóperuna”! Sigga, Amma hennar Heiðu gaf mér gjafabréf í Þjóðleikhúsið bæði í ár og í fyrra, og okkur Heiðu fannst það bara tilvalið að nota annað á þessa sýningu, enda mælti hún eindregið með því að við myndum skella okkur á þessa sýningu, þ.e.a.s. amma hennar mælti með því að við færum á þessa sýningu...;)

 

 



Jæja helgin nálgast óðfluga, frá því sem ég stend lítur hún bara þokkalega vel út. Leikhús á föstudaginn, hugsanlega hitta Línu og Kristínu sem er bara hevví æðislegt!

Ég hef ekki séð Línu síðan hún var  að æfa sig í að taka faðmlög með atrennu á mér uppí Vatnaskógi verslunarmannahelgina 2003 þ.e.a.s áður en ég fór út! Ég held það sé alveg komin tími á að við förum að rifja upp gömul kynni. Ég fór norður á Hvammstanga og hitti Kristínu helgina eftir að ég kom heim frá USA. Þetta er alveg agalegt hvað Ísland er óttalega stórt oft á tíðum.

 

 



Jæja....ég er búin að vera alveg ótrúlega þreitt þessa vikuna, samt búin að vera ótrúlega mikið með Heiðu! Sem er bara stærsti pús sem til er ;) við erum alveg hrottalega hamingjusamar ;) Á föstudaginn eftir viku munum við eiga 18 mánaða afmæli! Þetta er aveg ótrúlegt, mér finnst við hafa verið svo miklu lengur saman en samt virðist svo stutt síðan. Á fimmtudaginn er  árshátiðarballið og vitiði hvur er að DJ-ast?? Hahaa það er enginn annar en Páll Óskar...ég verð hevví mikil gelgja whenever he’s around ;) skondið að hann sé að spila á 18 mánaða afmælinu okkar....(ballið mun væntanlega ná frammyfir miðnætti)

 

 



En já this is all good! Ég ætla að fara að koma mér í að gera eithvað merkilegt!

 

 



Ta taaaa

 

 



Yours truly

Ninna.


» 9 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 14:56:14 / ninna_sigga

Já veistu!

Ég er bara ekki frá því að ég sé bara nokkuð kát!

Ég lagði mitt af mörkum til að úrslitin yrðu eins og þau svo á endanum fóru! Ég hafði lofað eldri litlu frænku minni því ;) svona er ég nú góð frænka!

Eins og ég sé það þá munum við aldrei komast uppúr þessari bansvítans forkeppni, þetta er bara rugl! og ótrúlega ósangjarnt því að Eurovision er bara nágranna samningar og pólitík! við munum aldrei koma til með að bera sigur úr bítum og hvers vegna ekki bara að hafa gaman af hlutunum og gera þetta með stæl!

Já þá er það staðfest! hjá Sigríði Björgu heiti ég Heiða og Heiða heitir líka Heiða! hehe brill! en ef maður leiðréttir þessa elsku þá segir hún Jónína, á ótrúlega sætan hátt! alveg dýrka hana! hún er alltaf að koma í heimsókn hingað fram og skemmta sér í þessu líka hjúmongus rúmmi sem við eigum;)

Heilbrigðismálastofnun þarf ekki að koma hingað og loka herberginu! við Heiða tókum til í því í gær og ég er ekki frá því að maður sér allt bara í nýju ljósi!

Hurru svengdin segir til sín...ætla að fara að fá mér eithvað að narta í.

Sjáumst

talala
lifð heil

Ninna.


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 11:20:39 / ninna_sigga

Ekki enn dauð og ekki heldur heimsk stelpa!

Sælt veri fólkið!

Ef ég fæ eithvað diss um að hafa ekki verið að tjá mig hérna hef ég góða afsökun! Ég hef verið að skrifa ritgerð, læra fyrir próf og alles ég er búin að vera þokkalega dugleg, ég er bara nokkuð ánægð með mig.

Helgin var óttalega næs! milli þess sem ég var að gera sálfræði verkefni og Heiða að teikna líkamsparta vorum við að stússast. Á föstudaginn vorum við að passa prinsessu nokkra á Kambsveginum! Hún var rosalega góð...þegar hún fór í bað var hún dugleg að vanda að skvetta á stóru frænku sína! hef ekki séð hana gera þetta svona rosalega á aðra...eru þetta einhver hidden skilaboð;) humm...pælum í því. við komum heim klukkan hálf 6 og klukkan hálf 7 vakti Valli (pabbi hennar Heiðu) okkur til að kveðja okkur því hann var að fara til Austurríkis á skíði....neinei ég er ekkert öfundsjúk.... reyndar langar mig ekkert á skíði mér bara langar eithvert út! ég er að deyja....mér langar að fara og kanna ókunnar útlendar slóðir með Heiðu!!! Björn bróðir var að koma úr þriggja daga London ferð og Soffía systir er að fara í næsta mánuði til einmitt London! og mamma og pabbi eru líka að fara í 3 vikna ferð..ekki til London reyndar en til Kanarí! urg!!!! vonandi komumst við Heiða út í sumar!

Ég er komin með sumarvinnu!!! vííííí það er sama vinna og í fyrra í Samskip...það var fínt...þvílík tilbreyting að vera inni allt sumarið en þetta er fínt borgað, hreyfing og frí á helgum! og já í Höfuðborginni sem þýðir ég bý hjá Heiðu og get haldið áfram að verja titilinn sem besta frænka í heimi hjá henni Sigríði Björgu minni! hún reyndar kallar mig Heiðu stundum en það er bara allt í lagi...við erum eitt kort eð er! ;) og lets face it Heiða er heldur auðveldara að segja heldur en Jónína! hehe hef samt heyrt hana segja það;) hún er duglegust í heimi! svo eru flestir sem þekkja okkur Heiðu sem kalla mig Heiðu og Heiðu Ninnu on rare ocation! bara eðlilegasti hluti í heimi.

Ég er orðin betri í bakinu! fyrir þá sem ekki vissu var ég alveg frá í bakinu í síðustu viku! Ég bar út í morgun! það var bara æði! Ég er svo miklu hressari á morgnanna þegar ég er búin að bera út! eins og þið kannski heyrið!
Ég er í eiðu núna vegna þess að Fél kennarinn er veikur! ásamt eithvað 20 öðrum (ýkjur, samt ekki) mánudagsveikin á fullu!

Heyrðu ég er orðin uppiskroppa um hluti til að segja að ég ætla bara að slútta þessu í beli! við sjáumst

Lifið heil!

kveðja

Ninna...

p.s. Heiða ástin mín! Bloggaðu!

» 7 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 10:41:05 / ninna_sigga

Áætlun!

Jæja! ég held að málið sé bara að taka öll þessi blessuðu lög sem tóku þátt í undankeppninni og demba þeim á netið til að öll lögin fái "sanngjarna meðferð" Ég er alveg á því...! vegna þess að ég er alveg á því að stelpan eigi að fara út! Ég veit að ég var alveg rosalega á móti henni í sumar en þegar maður loks fattar þennan blessaða húmor hennar þá er þetta bara nokkuð skondið! finnst lagið bara algert æði! og alveg brillíant að hafa Siggu Beinteins í bakröddum....ég er komin með þvílíka draumóra að sjá hana á sviðinu þarna úti, ég bara man ekki kaða lag vann í fyrra...það var svo alltof eðlilegt!

en það sem er annað að frétta er að það er alveg brjál að gera í skólanum....Loksins segi ég bara....þetta er bújn að vera þokkalega easy ride hingað til, ég er á næst síðustu önninni minni og kennararnir eru farnir að láta mann vinna fyrir einkunnunum....ég er samt ekki að byðja um mikið meiri hörku en nú er....;)

Hyskið er hresst eins og að vanda en það er satt hjá Evu Lind að við verðum að fara að skipuleggja eithvað skondið til að gera! eithvað sem allir komast í! við erum bestasti vinahópur í heimi og við ætlum að halda því áfram!

Það var leiðinlegt að segja bless við Heiðu í gær þegar hún tók strætó í bæinn! en það fer að koma páskafrí og þar á eftir kemur sumarfrí svo kemur jólafrí og þá er ég búin í skólanum!! yeah!!! þá getum við alltaf verið saman! :D :D

En já best að fara með athyglina á það sem kennarinn er að tjá sig....eithvað um stjórmál...enda FÉL 303 sem er stjórnmálafræði!

Lifið heil að vanda

ta taaa
ykkar
NINNA

» 8 hafa sagt sína skoðun

05.02.2006 23:09:21 / ninna_sigga

Til hamingju fólk!

Jæja núna erum við stöllur komnar með blogg saman! það var tími til komin segi ég nú bara! Ég get engu lofað um hversu duglegar við verðum eða hversu spennandi þetta mun verða en við munum reyna hvað við getum til að svala ykkar skemmtanaþorsta ;) eða eithvað! SKILURU nei segi svona...ég er allavega þokkalega á því að senda Silvíu út við klikkuðum á að senda Botnleðju út á sínum tíma með eithvað svona öðurvísi svo þessvegna á að senda hana því hún mun þokkalega brjóta keppnina upp og vera vel eftir minnanleg, með fullri virðingu fyrir öllum hinum ;)

Jæja...það sem er helst í fréttum er það að Heiða er flutt til föður síns á Álfhólsvegi 125 í Kópavogi, við vorum að flytlja hana þangað á síðustu helgi og það var alveg hevví stuð, ég fékk að ofurtrukkalessast ógla mikið! ég var í stuttbuxum og hlírabol að bera kassa hillur og rúm útí bíl, reyndrar hjálpuðumst við að bera rúmmið útí bíl en samt...

Jæja ég nenni ekki meiru í bili og langar að fara að sofa við hliðina á konunni minni ;)

en já vonandi verðiði dugleg að heilsa uppá okkur hérna og verið dugleg að kommenta!

Lifið heil
ykkar.
Ninna



» 4 hafa sagt sína skoðun